Svifryksmælar

Smelltu hér til að skoða svifryksmæli næst þér

Loftgæðamælingar

15. febrúar, 2012

Loftgæðamælar í kvörðun fram yfir helgi

15. febrúar 2012

Frá 16. febrúar, munu ómarktækar mæliniðurstöður birtast á loftgæðamælum á Hellisheiði og í Norðlingaholti vegna kvörðunar þeirra.

Reiknað var með að kvörðunin gæti verið lokið samdægurs en komið hefur í ljós að kvörðun mælitækjanna verður ekki lokið fyrr en eftir helgi.

Tilkynning mun birtast hér á síðunni þegar kvörðun er lokið og sjálfvirk birting mæliniðurstaðna aftur komin á.

2. febrúar, 2012

Mælingar í Norðlingaholti

2. febrúar 2012

Á morgun verður unnið að stillingum og prufumælingum við loftgæðamælistöðina í Norðlingaholti. Allar niðurstöður föstudagsins 3. febrúar verða því rangar og ómarktækar.

Það er von okkar að þessi prufukeyrsla taki ekki lengri tíma og hafi ekki óþægindi í för með sér fyrir þá sem fylgjast með

Lesa meira

30. janúar, 2012

Loftgæðamælingar í Hveragerði

Undanfarið hafa mælst nokkuð há gildi á brennisteinsvetni í loftgæðamælistöðinni í Hveragerði.

Fjarskipti við mælinn voru ekki virk frá 23. desember fram til 21. janúar sl. Kom þá í ljós að mælingar þann 2. janúar sl. höfðu verið yfir tilkynningarmörkum skv. reglugerð nr. 514/2010.

Tekið skal fram að um óyfirfarnar mælingar er að ræða

Lesa meira

2. janúar, 2012

Gleðilegt ár

. feb. 2007 019

Óskum einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélögum á starfsvæði okkar, gleðilegs árs, með kærri þökk fyrir samskipti og samstarf á liðnu ári. Megi árið 2012 verða Sunnlendingum farsælt og tryggja okkur áfram heilnæm matvæli, ómengaða náttúru og hreint umhverfi.

Lesa meira

14. desember, 2011

Lokað föstudaginn 16. desember

Föstudaginn 16. desember verða skrifstofur HES á Austurvegi 56, Selfossi og Strandvegi 50, Vestmananeyjum lokaðar vegna starfs- og fræðsludags starfsmanna. Vaktsími HES þennan dag er 8618660 vegna áríðandi málefna og mun bráðaverkefnum verða sinnt ef upp koma.